Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.10.2007 | 21:17
67. Tumaganga með þáttaskilum í borgarstjórn
Þau stórtíðindi urðu í íslenskum stjórnmálum í dag að slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í borgarstjórn Reykjavíkur. Ljóst er af fréttum á visir.is að það var eins og mig grunaði að gamlir framsóknarrefir stóðu á bak við þá leikstýrðu framvindu mála að láta Björn Inga slíta samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, Alfreð Þorsteinsson hefur að heita má játað því að hann hafi komið þarna við sögu (eflaust í nánu samráði við formann sinn og þingmenn flokksins). Sjálfstæðismenn úr röðum borgarfulltrúa tönnlast nú á því að þeir hafi ekki talið það samræmast almannahagsmunum eða hagsmunum Reykvíkinga að OR tæki þátt í áhætturekstri - eins og þeir kalla útrásina" núna. Þess vegna hafi þeir viljað selja hlut OR í REI strax. Um þetta eru greinilega ekki allir sammála í Sjálfstæðisflokknum. Þorgerður Katrín spurði í Silfri Egils á sunnudag hvað lægi svona á að selja - menn ættu að bíða eftir lagaramma og reglum o.s.frv. Gísli Marteinn sagði svo í kvöld að stofnun REI hefði frá upphafi verið hugsuð til þess að losa OR út úr áhætturekstri. Það er stórfurðurleg fullyrðing í ljósi þess að Villi Þonn hafði aldrei hugsað sér að selja neinn hlut OR í REI - fyrr en hann var neyddur á þá skoðun af meðreiðarfólki sínu í borgarstjórn. Myndun nýja meirihlutans í borgarstjórn grundvallast á þeirri sameiginlegu skoðun allra flokka, sem þau eru fulltrúar fyrir, að þjóni ekki hagsmunum almennings að selja hlut OR í REI vegna þess að með þeirri gjörð verður spekúlöntum á borð við Hannes Smárason fengið óskorað vald yfir orkulindum á Reykjanesskaga og í Borgarfirði. Sala nú - áður en búið er að setja löggjöf um nýtingu orkulinda í eigu þjóðarinnar og hvernig einkaaðilar geti komið að henni - er einfaldlega upphafið á nánast stjórnlausri einkavæðingu þessarar dýrmætu auðlindar í þágu nokkurra fjárplógsmanna. Allt tal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Villa Þonn um að afstaða þeirra til sölu mótist af umhyggju með almannahagsmunum er tómt yfirklór og ógeðfellt að hlusta á þessa tuggu af vörum þeirra aftur og aftur í viðtölum. Bráðri hættu á einkaeignarvæðingu auðlindanna hefur verið bægt frá um stundarsakir en ógjörningur að spá hver verður framvinda mála. Raunverulegt eignarhald og yfirráð yfir orkulindum þjóðarinnar er grundvallaratriði sem tekist er á um í íslenskum stjórnmálum þessa dagana. Ekki kæmi mér á óvart þó að leikstjórar væru að velta fyrir sér að líta inn baksviðs á alþingi.
27.9.2007 | 15:16
66. Tumaganga með A Taste of Iceland
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2007 | 15:14
65. Tumaganga í stækkaðri Leifsstöð
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.9.2007 | 15:12
64. Tumaganga eftir Noregsumferð
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 21:44
63. Tumaganga með uppstigningarstjórn Ingibjargar Sólrúnar
Ný samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gæti þess vegna kallast uppstigningarstjórn". Þessi nafngift á ekki aðeins við vegna þess að flokkarnir byrjuðu opinberar viðræður um myndun þessarar ríkisstjórnar á uppstigningardag heldur einnig vegna þess að með myndun þessarar stjórnar tókst Ingibjörgu Sólrúnu að stíga upp á ný til stjörnuhimins stjórnmálanna.
Ég bjó mér til kenningu um atburðarás á meðan við Tumi fengum okkur kvöldröltið áðan. Ég ætlast ekki til að nokkur maður taki mark á þessari kenningu. Eflaust finnst mörgum hún hreinasta vitleysa og að sjálfsögðu hef ég ekkert fyrir mér í þessu. En Tuma fannst kvöldgöngukenningin ekkert fjarstæðukenndari en margt annað svo að ég læt hana flakka hér:
Ingibjörg Sólrún hefur ekki verið með hýrri há síðan henni mistókst hrapallega það ætlunarverk sitt í alþingiskosningum árið 2003 að fella Davíð Oddsson, forsætisráðherra. Hún náði ekki einu sinni þingsæti og hélt sig baksviðs um skeið með þá byrði að hafa skyndilega og að óvörum mörgum kjósendum sínum stigið niður úr stóli borgarstjóra.
Eftir að hafa náð í formannstitil Össurar Skarphéðinssonar má ætla að Ingibjörgu hafi verið deginum ljósara að Samfylkingin, undir forystu hennar, yrði að ná góðum árangri, helst glæsilegum, í næstu alþingiskosninum ef hún, Ingibjörg, ætti ekki að bíða aftur nokkurn hnekki á pólitískum framaferli sínum og jafnvel eiga á hættu að missa formannsembættið.
Út á við náði Ingibjörg ekki að njóta sín með sama hætti og áður síðustu tvö árin. Fólk hafði orð á þessu og í vetur ætlaði henni ekki að takast - eins og í borginni forðum - að verða þessi baráttudjarfi, glaðbeitti og einarði stjórnmálamaður sem laðaði til sín fólk í baráttu gegn ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Eftir áramót, uppákomuna í Frjálslynda flokknum og endalok kaffibandalagsins" var greinilegt að Ingibjörg hafði áhyggjur af komandi kosningum. Þegar niðurstöður skoðanakannana í febrúar og mars fóru síðan að sýna að fylgi félagshyggjufólks reyttist af Samfylkingu en hlóðst utan á Vinstri-græn (þau voru um tíma að verða nær jafnstór flokkur) má geta sér til að Ingibjörg hafi einnig farið að óttast um staða hennar sem formanns í Samfylkingunni gæti veikst til muna nema tækist að fella ríkisstjórnina og henni tækist í hlutverki forsætisráðherra að koma Samfylkingu í ríkisstjórn með Vinstri-grænum og þá Frjálslyndum ef þá þyrfti til við myndun þingmeirihluta.
Eins og kunnugt er tókst Ingibjörgu og Samfylkingarfólki með miklum dugnaði að ná smám saman mun betri stöðu í skoðanakönnunum þegar leið nær kosningunum. En þá virtist fylgið ætla að reytast aftur af Vinstri-grænum og voru sterk teikn á lofti um það síðustu tíu daga fyrir kosningarnar að væri tæpt að Samfylkingu, Vinstri-grænum og Frjálslyndum tækist að fella ríkisstjórnina. Framsóknarflokksins virtist þá ekki bíða annað en drjúgt tap en Sjálfstæðisflokkur stefndi í að bæta við sig. Í vikunni fyrir kosningar hefur Ingibjörgu án efa verið ljóst að kæmi ekki til eitthvert kraftaverk, sem gjörbreytti fylgishorfum félagshyggjuflokkanna til hins betra, yrði næsta ríkisstjórn ekki mynduð án þátttöku og undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Þar sem Ingibjörg ætlaði sér ekki að vera ótilneydd í stjórnarandstöðu næsta kjörtímabil og hætta þannig pólitískri framtíð sinni, hafa hún og aðrir stefnumótandi forystumenn í Samfylkingunni þá þegar farið að leggja drög að því með hvaða hætti mætti ná málefnalegu samkomulagi við Sjálfstæðisflokk ef til þess kæmi að Geir Haarde leitað eftir samvinnu við Samfylkinguna.
Strax eftir kosningar var ljóst að stjórnarandstaðan hafði ekki bolmagn til að mynda meirihlutastjórn. Framsóknarflokkur hafði tapað hressilega og formaðurinn, iðnaðarráðherra, og umhverfisráðherra dottið út af þingi. Jafnframt var ljóst að þingmeirihluti ríkisstjórnarflokkanna var svo tæpur að var ekki ráðlegt að treysta á að hann héldi og hætta á að einn þingmaður gæti þess vegna beitt stjórnina þrýstingi. Geir Haarde og aðrir í forystu Sjálfstæðisflokksins höfðu ekki áhuga á að halda stjórnarsamstarfinu áfram og mátu það strax svo (væntanlega á grundvelli viðræðna á milli góðkunningjanna" Geirs og Ingibjargar) að ætti að mynda nýja ríkisstjórn með Samfylkingu.
Framsóknarmenn gerðu sér loks grein fyrir að nærveru þeirra var ekki óskað í næstu ríkisstjórn og að málefnaþreifingar á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar voru þegar hafnar. Eftirleikurinn tók undraskamman tíma. Inigbjörg var staðráðin í að styrkja stöðu sína á meðal flokksmanna sinna með því að koma Samfylkingunni í ríkisstjórn og kunningsskapur milli hennar og Geirs Haarde virðist hafa átt drjúgan þátt í hversu vel það gekk. Ingibjörgu og Samfylkingarfólki tókst að koma ýmsum baráttumálum sínum inn í stjórnarsáttmálann en það lét ekki gamlar heitingar í garð Sjálfstæðisflokksins og stór orð um misskiptingu auðs og ofurvald kapítalsins koma í veg fyrir að Samfylkingin legði praktískt og pragmatískt mat á úrslit kosninganna. Samfylkingin tók þannig bæði vinsamlegt tillit til talsmanna frjálshyggju og markaðshyggju og mildaði sósíaldemókratíska afstöðu sína með hliðsjón af heimssýn sem margir héldu að væri Samfylkingarfólki býsna framandi í ljósi þess sem það hefur látið á sér skiljast í allhörðum stjórnmálaumræðum á þingi í vetur og víðar.
Ignibjörg Sólrún var farin að ganga í einhverja endurnýjun strax í upphafi vikunnar eftir kosningar. Það réttist úr henni, alvörusvipurinn vék fyrir brosi og engu líkara en hún væri að losna undan þungu fargi. Hún sá þá strax fram á að allt stefndi í að sér hefi tekist að bjarga pólitískri stöðu sinni í Samfylkingunni og nú væru bjartari tímar framundan, fyrir hana og fyrir Samfylkinguna ef vel væri á haldið. Ekki spillti það svo persónulegri ánægju Ingibjargar að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var vissulega eini raunhæfi kosturinn í stöðunni og endurspeglaði einna best vilja meginþorra kjósenda í kosningum þar sem náðist ekki - fremur en oft áður - afdráttarlaus niðurstaða.
Nú er eftir að sjá hvernig Samfylkingu og grundvallarhugsjónum sósíaldemókrata reiðir af í stjórnarsamstarfinu. Um það getur enginn spáð á þessari stundu en ljóst að Ingibjörg hefur hætt miklu til í metnaði sínum og löngun til að stjórna og láta að sér kveða svo að hún gæti notað gullið tækifæri og stigið aftur upp á stjörnuhimin stjórnmálanna. Ný ríkisstjórn Geirs Haarde er vissulega uppstigningarstjórn Ingibjargar Sólrúnar.
24.5.2007 | 15:23
62. Tumaganga með ráðherra á heilanum
Það er eftirtektarvert hversu margir í þingflokkum stjórnarflokkanna hafa greint frá því í samtölum við fjölmiðla að þeir hafi sóst eftir því að fá ráðherraembætti í hinni nýju ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Það kom einnig fram í viðtölum við þingmenn, sem hrepptu hnossið og setjast nú í ráðherrastól, að þeim þótti mikils virði að fá nú tækifæri til þess að beita sér í tilteknum málaflokki og koma þar góðu til leiðar. Þessi ummæli, hvort sem þau komu frá ráðherrum eða vonsviknum þingmönnum, endurspegla vel þá gagngeru breytingu sem hefur smám verið að verða á hlutverki þingmannsins, löggjafans, og hlutverki ráðherrans, þess sem fer með framkvæmdavaldið í umboði þingsins. Menn hafa oft verið að hnýta í Alþingi og sakað þingmenn - og þá sérstaklega stjórnarþingmenn - um vöntun á frumkvæði og kallað þingið afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórn. Það leynir sér ekki af ummælum þeirra, sem bitust nú um ráðherraembættin, að stjórnarþingmenn eru einnig farnir að líta svo að þingmennskan ein færi þeim takmarkað áhrifavald. Metnaðarfullir einstaklingar, sem vilja setja mark sitt á stjórn og stefnu í tilteknum landsmálaflokki, líta greinilega svo á að það nái þeir ekki að gera af fullum þunga nema sem ráðherrar í ríkisstjórn. Vestrænt þingræði hefur verið að þróast í þessa átt býsna lengi, í 60 eða 70 ár. Ráðherrar og ríkisstjórnir verða sífellt valdameiri og fara að heita má bæði með löggjafarvald og framkvæmdavald en hlutverk hins eiginlega löggjafarvalds, þingsins, verður sífellt lítilvægara í samanburði við hlutverk framkvæmdavaldsins. Kannski menn ættu að staldra við áður en vestræn lýðræðisríki breytast í ólígarkí forystumanna í stjórnmálaflokkum sem hreppa ráðherraembætti.
23.5.2007 | 21:44
61. Tumaganga eftir stjórnarmyndun og stefnuskrá
Jæja, Tumi minn, langar þig ekki til að vita hvernig mér líst á stefnuskrá nýju ríkisstjórnarinnar?
Nei, í guðs bænum, ekki þú líka. Það skiptir ekki nokkurn mann nokkru máli hvað þér finnst um stefnuskrána.
Ég má þó alla vega segja þér hvað mér finnst um ráðherrana.
Gerðu það fyrir mig, slepptu því. Ég fæ bólur. Í dag er ég búinn að heyra eða lesa skoðanir hátt á annað hundrað manna um nýju ráðherrana. Auðsýn miskunn!
Ég hlýt að mega segja þér hvað mér finnst svona almennt um nýju ríkistjórnina sem Guðfinna situr ekki í þó að hún sé með tuttugu ára reynslu af stjórnunarstörfum?
Þú mátt láta þér finnast hvað sem er svona almennt um þessa nýju ríkisstjórn. Ég hef engan áhuga á að fá að vita það og ég þekki enga Guðfinnu. Er það konan sem afgreiðir þig með hundamatinn í Bónus?
En ég hef mjög skynsamlega skoðun á því hvaða stjórnmálamenn glopruðu niður tækifærinu með því að gera afdrifaríkustu mistökin í kjölfar alþingiskosninganna. Viltu ekki fá að heyra hana? Þetta er alveg útpæld skoðun. Ekki verri en skoðanir allra hinna. Ég lít svo á að Steingrímur......
Tumi setti upp flónskulegan spurnarsvip.
Hvaða Steingrímur? Og eftir hvaða alþingiskosningar?
Þú ert þó ekki að gera lítið úr þessum tímamótum í íslenskum stjórnmálum? Geir er búinn að fá fyrstu ágætiseinkunn hjá Guðfinnu og greiningardeildum bankanna og Ingibjörg er að fá límúsínu hjá utanríkisráðuneytinu.
Æi, stundi Tumi, lagðist fram á lappir sínar í grasinu við Kópavogslækinn og lygndi aftur augunum.
Þá áttaði ég mig á að hann er hundur sem hefur lifað tímana tvenna og að ég má ekki draga það lengur að stinga upp kartöflugarðinn.
11.5.2007 | 21:54
60. Tumaganga kvöldið fyrir kosningar
Niðurstöður síðustu skoðanakannana benda til þess að stjórnarflokkarnir hafi allnokkra ástæðu til að óttast að þeir muni missa þingmeirihluta eða a.m.k. starfhæfan þingmeirihluta í kosningunum á morgun. Niðurstöður þessara kannana benda einnig til þess að fylgi Samfylkingar sé að þokast upp undir 30% markið og að fylgi Vinstri grænna sé að staðfestast í kringum 17 til 18%. Kannarnirnar benda einnig til þess að Frjálslyndir nái örugglega yfir 5% og fái þar með a.m.k. þrjá menn á Alþingi.
Mér þótti stjórnmálaforingjar bera þess nokkur merki í umræðuþætti í ríkissjónvarpinu í kvöld að þeir hefðu á tilfinningunni að úrslit kosninganna á morgun yrðu ekki fjarri niðurstöðum í þessum skoðanakönnunum sem greint var frá í dag og kvöld. Vonarneistinn hjá Jóni Sigurðssyni flökti meira en nokkur sinni áður. Hófsemd og kurteisislegt viðmót Geirs Haarde gátu ekki dulið að honum virtist eilítið brugðið og ekki laust við að hann væri þreytulegur. Ingibjörg Sólrún var brosandi og sýndi merki um sjálfstraust sem hana hefur sárlega vantað í langan tíma. Steingrímur var þreytulegur og eitthvert gall í honum, væntanlega vegna þess að fylgi Vinstri grænna hefur sigið um allmörg prósentustig á sama tíma og Samfylkingin hefur náð af rétta sig af. Guðjón Arnar var vígreifari en áður og komst vel frá umræðunni, baráttuhugur í honum á síðasta sprettinum. Ómar talaði um sömu hlutina af sama tilfinningahitanum og með sömu orðum. Náttúra Íslands hefur svo sannarlega átt sinn málsvara í þessari kosningabaráttu og það er vel; fæstir kjósendur virðast hins vegar reiðubúnir að greiða atkvæði sitt til framboðshreyfingar sem hefur ekki náð að móta skýra stefnu í öðrum málflokki en náttúruvernd.
Án efa verður unnið ötullega að atkvæðasmölun í öllum flokkum á morgun og ekki síst af hálfu Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna sem eiga mikið í húfi í þetta skipti og ganga ekki til kosninga á morgun með hagfelldar tölur samkvæmt síðustu skoðanakönnunum. Enn sem fyrr getur enginn séð fyrir með neinni vissu hver úrslitin verða. Viðhorfskannanir benda til þess að kosningavakan verði óþægilega spennandi, hvort sem menn fylgja ríkisstjórnarflokkunum eða stjórnarandstöðunni að málum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 21:39
59. Tumaganga með skoðanakönnunum
Í dag birta íslenskir fjölmiðlar tvær skoðanakannanir þar sem Framsókn fær 14,6% atkvæða í annarri og 8,6% atkvæða í hinni. Munurinn er svo mikill að ekki er að undra þó að maður láti sér detta í hug að einhverjir megingallar hljóti að vera á verklagi og aðferðum við aðra hvora þessara kannana. Úrtak Félagsvísindastofnunar er tvisvar sinnum stærra en úrtak Capacent Gallup og gerir því niðurstöðu Félagsvísindastofnunar trúverðugri í augum leikmanns. En sérfræðingar segja mér að stærð úrtaks, ef úrtak fullnægir tilteknum lágmarksskilyrðum, þurfi ekki að vera trygging fyrir að niðurstaða könnunar endurspegli betur raunveruleg viðhorf. En niðurstaða Félagsvísindastofnunar er vissulega í meira samræmi við niðurstöður skoðanakannana að undanförnu en niðurstaða Capacent Gallup sem kom held ég öllum á óvart.
Annars er það orðið hvimleitt í aðdraganda kosninga hvað mikið er bollalagt um skoðanakannanir og miklu púðri og mannviti eytt í að tala um kannanir og niðurstöður þeirra. Ég veit ekki hvort frambjóðendur taka eitthvert mið af þessum könnunum. Mér þykir þó líklegt að þær hafi einhver áhrif á þá suma og ráði einhverju um hvernig baráttunni er hagað. Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa um að skoðanakannanir hafa áhrif á allmarga kjósendur, einkum með þeim hætti að stjórnmálaflokkur, sem mælist hvað eftir annað undir lágmarksfylgi til þingsetu, nái ekki að laða til sín fleiri kjósendur. Fólk sé hikandi að ljá slíkum flokki stuðning með atkvæði sínu sem skoðanakannanir stimpla ónýtt". Skoðanakannanir geta því orðið nýju framboði eins og Íslandshreyfingunni fjötur um fót. Eins getur viðvarandi afleitur árangur samkvæmt skoðanakönnunum hjá virku hagsmunaafli eins og Framsóknarflokknum orðið til þess að lagt sé meira ofurkapp á en ella væri að safna saman í samúðar- og hagsmunafylgi síðustu sólarhringa fyrir kosningar. Framsóknarmenn hafa iðulega stært sig af því að koma ávallt betur út í kosningum en í skoðanakönnunum. Skýringin á því er örugglega ekki viðhorfsbreyting á meðal kjósenda frá því að þeir sáu síðustu skoðanakönnun og þar til þeir gengu inn í kjörklefann.
Margir bregðast ókvæða við þegar imprað er á því að banna skoðanakannanir í 10 daga eða viku fyrir kosningar - eins og víða mun gert. Ég hallast samt að því að væri rétt að stíga þetta skref og láta kjósendur og frambjóðendur eina um hituna á lokasprettinum og gefa reiknimeisturum og atkvæðasmölum frí fram á sjálfan kosningadaginn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 21:35
58. Tumaganga síðustu daga fyrir kosningar
Nú styttist í kosningar. Skoðanakannanir, jafnvel þó að þeim beri nánast aldrei saman og breytist lítillega frá degi til dags, benda til þess sem mátti sjá fyrir að íslenskir kjósendur verða seinþreyttir til umskipta þegar kemur að því að ákveða í kjörklefanum hvaða flokk eða stjórnmálastefnu eigi að greiða atkvæði. Það eru þá einna helst yngstu kjósendurnir sem kunna að geta hugsað sér nýjar leiðir.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins er á sínu óhagganlega bili milli 36-40%, klofningurinn út úr Sjálfstæðisflokknum, Frjálslyndir, ná líklega að koma inn þremur þingmönnum eða svo í jöfnunarsæti, vinstrihóparnir halda sínu miðað við síðustu kosningar og hugsanlega eitthvað aðeins meira en það og Framsóknarflokkurinn virðist ætla að ná 10% þegar upp er staðið. Það verður mjótt á munum hvort stjórnin fellur eða ekki.
Falli stjórnin er það ekki stjórnarandstöðunni að þakka heldur þeim kjósendum á kjördag sem telja komið nóg af veru Framsóknarmanna í ríkisstjórn. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa verð að skerpa málflutning sinn þessa síðustu daga fyrir kosningar en eru hikandi samt að taka slaginn beint við Sjálfstæðisflokkinn; þeir láta sér nægja að níða niður Framsóknarflokkinn, eru líkast til búnir að láta stjórnmálafræðinga reikna það út fyrir sig að lykillinn að því að fella stjórnina sé að reyta eins og hægt er utan af Framsóknarflokknum. Það er með ólíkindum, finnst okkur Tuma, hvað þessi litli flokkur verður ævinlega fyrirferðarmikill.
Það er annars að bera í bakkafullan lækinn að bollaleggja um kosningabaráttuna og hugsanleg úrslit á laugardaginn kemur. Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur greinilega ákveðið að taka ekki virkan þátt í kosningabaráttunni heldur sýna öðrum flokkum kurteisi og þolgæði og bíða þess með yfirlætislegu jafnaðargeði hvaða flokk verði að taka til samstarfs í ríkisstjórn eftir kosningar ef svo færi að Framsókn biði slíkt afhroð að væri ekki boðlegt kjósendum - eða varla gerlegt vegna þingmannafæðar Framsóknar - að hafa Framsókn áfram í ríkisstjórn.
Við Tumi höfum hugsað okkur að fara að fordæmi Sjálfstæðismanna, segja fátt og láta kosningarnar ekki koma okkur úr jafnvægi. Við teljum það happasælast fyrir þjóðina að breytt verði um áherslur í íslenska stjórnarráðinu eftir 16 ár af sama handritinu. Á laugardaginn verður það samt hinn jarðbundni, sjálfhverfi, skuldsetti og pragmatíski Íslendingur sem hefur síðasta orðið. Stjórnarandstaðan virðist ekki hafa haft neinn áhuga á að hagga neitt að ráði við honum - að minnsta kosti ekki ennþá - og nú er stuttur tími til stefnu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tumagöngur
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 480
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar