32. Tumaganga með lýðræði og auðræði út í Örfirisey

              Við Íslendingar lítum svo á að við búum í lýðræðisríki. Í því felst að samkvæmt tilteknum stjórnarfarsleiðum er öllum einstaklingum, sem uppfylla ákveðin skil­yrði, gefinn kostur á að hafa með atkvæði sínu í almennum kosningum áhrif á hverjir eru handhafar ríkisvalds og sveitar­stjórnarvalds og hvaða meginviðhorf­um er fylgt við valdstjórnina. Segja má að fyrsti vísir að stjórnarháttum, sem minntu á lýðræði, hafi orðið til hér á landi með endurreisn Alþingis eftir bylt­ing­arárið 1848. En þar sem kosningaréttur var lengi bundinn þröngum tak­mörk­unum er varla hægt að halda því fram að íslensk stjórnskipun hafi verið raun­verulegt lýðræði, eins og við skiljum það hugtak nú, fyrr en um 1920. Saga lýðræðis á Íslandi - eins og í flestum öðrum svonefndum vestrænum lýðræðis­ríkjum - er því harla stutt á mælikvarða mannkynssögunnar, spannar hálfan níunda áratug eða svo.
            Allan þennan stutta tíma hefur lýðræðið ævinlega átt undir högg að sækja, fyrst og fremst vegna þess að valdastéttum þykir oftar en ekki að lýðræðið setji auði þeirra og þar með valdinu, sem auður þessa stétta hefur fært þeim, of þröngar skorður. Lýðræðislegar kjörnir valdhafar hafa orðið að gæta eða að láta a.m.k. líta svo út sem þeir væru að gæta hagsmuna allra atkvæða sinna, allra hugsanlegra kjósenda, og jafnvel valdhafar, þóknanlegir hinum ráðandi peningaöflum, hafa orðið að leita málamiðlunar þegar kom að því að þóknast einnig hinum almenna borgara. En handhöfum auðvaldsins, hins raun­verulega valds í öllum samfélögum, hefur samt tekist að koma sér þægilega fyrir innan hins formlega ramma lýðræðisskipulagsins. Þeir hafa á grundvelli hlutafélagaréttar hreiðrað um sig í sjálf­stæðum ríkjum í ríkinu, í stórum og öflugum fyrirtækjum og fyrirtækjasam­steypum sem hefur vaxið ásmegin af fáheyrðum krafti á undan­förunum 15 til 20 árum, hér á landi eins og hvarvetna annars staðar. Á sama tíma hefur dregið smám saman mátt úr þeim valdsþáttum, sem lúta lýðræðinu, framkvæmdavaldi og löggjafarvaldi ríkisins og sveitarstjórna­valdi. Er þess varla lengi að bíða að á Íslandi og í flestum öðrum ríkjum heims verði komið á svokallað auðræði í stað lýðræðis, auðræði sem styðst við fyrirtækja­ræði, lénsskipulag sem minnir á það sem auðkenndi Evrópu á miðöldum og þar sem eignarhaldsfélög og fyrirtækjasamsteypur eru komin í stað kastala og forstjórar og framkvæmdastjórar í stað brynjuklæddra riddara.
            Lítið en lærdómsríkt dæmi um sífellt virkari áhrif, sem bera keim af auðræði og fyrirtækjaræði, eru t.d. tíðindi af því að öflugt fyrirtæki á íslenska vísu hafi keypt upp lóðir úti í Örfirisey í Reykja­vík, lagt fé í mikla undirbúningsvinnu við hönnun og verkfræðilega útfærslu á íbúðahverfi á land­fyllingu hjá eynni og „krefjist" þess nú að fá að reisa þetta hverfi eins og hug­myndir eigenda fyrirtækisins gera ráð fyrir. Vissulega er það svo að umrætt fasteignafyrirtæki leggur þessar hugmyndir sínar fyrir hin lýðræðislega kjörnu skipulags­yfirvöld í borginni og að þau hafa síðasta orðið - en það er jafnframt ljóst með hliðsjón af lóðaupp­kaupum og undirbúningi verksins fram að þessu að eigendur byggingafyrir­tækisins eru eiginlega ekki í nokkrum vafa um hvaða afgreiðslu málið fær. Í þeirra augum er auðræði í skjóli fyrirtækjaræðis hið eðlilega og nútímalega stjórnarform. Auðræðið ætlar sér að segja lýðræðinu fyrir verkum, lýðræðis­lega kjörnir fulltrúar borgarinnar, skipulagsyfir­valdið, eiga að byggja ákvörðun sína á hags­munum fyrirtækisins en ekki á hagsmunum Reykvíkinga. Svo einfalt er það. Svo einfalt að Gísli Marteinn Baldursson, sem á sæti í skipulagsráði borgarinn­ar, er þegar farinn að viðra þá hugmynd að Reykvíkingar leggi miljarða króna í gerð jarð­ganga undir Reykjavíkurhöfn svo að umrætt miljarðafyrirtæki geti hrint byggingaráætlun­um sínum í framkvæmd og eigendur þess haldið áfram að moka hagnaði í botnlausa vasa sína.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tumagöngur

Tumi sýndi mér þann vináttuvott á hverju kvöldi í 15 ár að fallast á að ég fengi að fara út með honum að ganga. Hann dró mig á eftir sér í ól og beið ævinlega rólegur ef ég þvældist frá honum eða villtist. Hann tók því einnig með jafnaðargeði þegar ég ræddi við hann um hvaðeina sem lá mér á hjarta í þessum gönguferðum og átti það stundum til að rjúfa einræðu mína með skarplegum athugasemdum. Nú er Tumi allur. Hann hefur hvílt í tvö og hálft ár undir björkum í Marteinsseli. Ég fer samt enn í Tumagöngu á hverju kvöldi. Ég skrafa enn upphátt við sjálfan mig og Tumi skýtur inn einu og einu orði. Ég finn hvernig hann togar í mig í ólinni á eftir sér. Ég þykist vita hvert við erum báðir að fara.

Höfundur

Jón Örn Marinósson
Jón Örn Marinósson

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 333

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband