51. Tumaganga með grænu og gráu

             Í ljósi þess hversu illa gengur að finna viðhlítandi lausn á hinu aldagamla deiluefni stjórnmálanna, skiptingu takmarkaðra jarðneskra gæða á milli jarðarbúa, þarf engan að undra þó að við Tumi höfum orðið hvumsa þegar formaður Íslands­flokksins sagði að nú væri ekkert til sem héti hægri og vinstri; á 21. öldinni snerist allt um grænt eða grátt. Ég ætla formanninum ekki svo þröngt sjónarhorn að hann viti ekki af hinni geig­vænlegu misskiptingu á lífsgæðum sem enn er staðreynd á jörðinni. Að líkindum hefur hann einvörðungu verið að tala um íslenskt samfélag. Vænt­an­lega á hann við að skipti engu máli lengur hvort menn á Íslandi aðhyllist einstaklings­hyggju, individualisma, eða félags­hyggju, sósíalisma, því að meginverkefnið í ís­lensku samfélagi á 21. öld sé að hrinda af stað hinni grænu byltingu, hætta iðnvæð­ingu og umhverf­is­­­mót­andi tæknivæðingu og gera náttúruvernd að forgangsverk­efni á Íslandi.  
            Formaðurinn var inntur eftir afstöðu til annarra viðfangsefna í íslenskum stjórnmálum, til kvótakerfis, til landbúnaðarkerfis, til skattkerfis og fleiri hluta. Þar var ekki mikið um svör nema hvað for­maðurinn vitnaði mjög til Norðmanna sem hafa á síðustu árum otað að heiminum ímynd sem byggir á smábændum í þjóðbúningum að spila á harðangurs­fiðlur í óspilltu umhverfi norskra dala og er ætlað að fela hið eina og sanna þjóðartákn Norðmanna í upphafi 21. aldar, olíuborpallinn.
            Ég á enn eftir að sjá fyrir mér hvernig einstaklingshyggjumenn ætla að sam­ræma eftir pólitískum leiðum græna forsjárhyggju og einstaklings­frelsi og einstakl­ings­­fram­tak. Áhersla á umhverfisvernd og viðurkenning á því að maðurinn geti ekki í græðgi sinni gengið of nærri náttúrunni er ekki pólitísk kenning eða pólitísk sann­færing. Þetta er miklu fremur viðhorf til þess hvernig beri að haga efnahagsstarfsem­inni, hvort sem stuðst er við miðstýrt hagkerfi eða hagkerfi kapítalismans. Stjórnmála­flokkar hér á landi eru farnir að sinna umhverfismálum og náttúruvernd og reyna að samþætta þetta tvennt skoðunum sínum á því hvernig eigi að leysa önnur brýn verk­efni stjórnmálamanna á hverjum tíma. Framboðs­flokkur með sannast sagna aðeins eitt mál á stefnuskrá finnst okkur Tuma ekki hugnanlegur kostur í íslenskum stjórnmálum vorið 2007. 

             


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tumagöngur

Tumi sýndi mér þann vináttuvott á hverju kvöldi í 15 ár að fallast á að ég fengi að fara út með honum að ganga. Hann dró mig á eftir sér í ól og beið ævinlega rólegur ef ég þvældist frá honum eða villtist. Hann tók því einnig með jafnaðargeði þegar ég ræddi við hann um hvaðeina sem lá mér á hjarta í þessum gönguferðum og átti það stundum til að rjúfa einræðu mína með skarplegum athugasemdum. Nú er Tumi allur. Hann hefur hvílt í tvö og hálft ár undir björkum í Marteinsseli. Ég fer samt enn í Tumagöngu á hverju kvöldi. Ég skrafa enn upphátt við sjálfan mig og Tumi skýtur inn einu og einu orði. Ég finn hvernig hann togar í mig í ólinni á eftir sér. Ég þykist vita hvert við erum báðir að fara.

Höfundur

Jón Örn Marinósson
Jón Örn Marinósson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 324

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband